Markmið

Meginmarkmið Ylfu er að veita persónulega notendastýrða þjónustu auk þess að veita þjónustu sem eflir fólk með þroskafrávik og fjölskyldur þeirra til fullrar þátttöku í samfélaginu á eigin forsendum. Að koma að nýsköpun, auka val, fjölbreyttni og áhrif viðskiptavina á þjónustuna.

 

Ylfa leggur metnað í að efla og bæta lífsgæði fólks með þroskafrávik og fjölskyldna þeirra.

Hugmyndafræðin sem liggur að baki Ylfu er yfirgripsmikil og margþætt. Grunnhugmyndin er brotin niður í fjóra þjónustuþætti sem eru: ráðgjöf, nærþjónusta, fræðsla og stuðningshópar. 

Ylfa vinnur á landsvísu.

Leiðarljós

Leiðarljós fyrirtækisins er "YLFA" sem stendur fyrir þeirri þjónustu sem fyrirtækið leggur metnað í að veita. YLFA stendur fyrir:
Yfirsýn, markmiðið að bjóða upp á ráðgjöf til að aðstoða aðstandendur að hafa yfirsýn yfir markmið og leiðir sem fylgir því að eiga aðstanda með þroskafrávik.
Lífsgæði, markmiðið að efla og bæta lífsgæði fólks með þroskafrávik og fjölskyldur þeirra.
Fagmennska markmiðið að veita faglega og einstaklingsmiðaða ráðgjöf og þjónustu sem byggir á virðingu og trausti.
Aðstoð. markmiðið að veita sveigjanlega, áreiðanlega og lausnarmiðaða nærþjónustu.


Leiðarljós fyrirtækisins er:

- Að efla og bæta lífsgæði fólks með þroskafrávik og fjölskyldna þeirra.
- Að veita faglega og einstaklingsmiðaða ráðgjöf sem byggir á virðingu og trausti.
- Að veita sveigjanlega, áreiðanlega og lausnamiðaða nærþjónustu

Saga Ylfu ehf.

 

Ylfa ehf. var stofnuð á Gamlársdag árið 2006 af þroskaþjálfunum Sóleyju Guðmundsdóttur og Ingibjörgu G. Guðrúnardóttur. Hugmyndafræðin að baki stofnunar Ylfu ehf. er samfélgsþátttaka, sjálfstætt líf og persónustýrð þjónusta fyrir börn og fullorðið fólk með þroskafrávik og fjölskyldur þeirra. Sumarið 2007 gekk Hildur Eggertsdóttir til liðs við Ylfu og þá um haustið hófst vinna við fyrstu verkefni fyrirtækisins. Ylfa hefur vaxið á þessum rúmu þremur árum og verkefnin verið fjölbreytileg til lengri og skemmri tíma.