Nærþjónusta

 

Það sem átt er við með nærþjónustu er að veita tiltekna þjónustu á ákveðnum stað og tíma allt eftir óskum viðskiptavina.

NPA notendastýrð persónuleg aðstoð


Fyrir þá sem fá beingreiðslur og vilja stýra sinni þjónustu skv. hugmyndafræði NPA (notendastýrð persónuleg aðstoð) getur Ylfa stýrt/aðlagað þjónustuna fyrstu skrefin og sinnt eftirfylgd. Ef notandi getur ekki sjálfur stýrt  þjónustunni getur Ylfa útvegað talsmann. Hann hefur það hlutverk að vinna að málum viðskiptavinarins til dæmis varðandi réttindi, umsóknir og samskipti við stofnanir sitja fundi, tala máli viðskiptavinar og miðla upplýsingum. Ylfa getur séð um aðlögun t.d. þegar flutt er að heiman, aðstoðað við ráðningar og þjálfað starfsmenn. Ylfa veitir ráðgjöf til fjölskyldu, kemur með hugmyndir af dagskipulagi og innara skipulagi þjónustunnar.